Fræðast um fátækt og safna í Framtíðarsjóð
24.10.2013
Landsmót æskulýðsfélaga þjóðkirkjunnar verður sett í Reykjanesbæ á morgun. Í ár verða 640 þátttakendur á landsmótinu, 500 þáttakendur ásamt á annað hundrað leiðtogum og sjálfboðaliðum. Þetta er fjölmennasta landsmótið sem hefur verið haldið til þessa. Að þessu sinni ætla unglingarnir í æskulýðsfélögunum að fræðast um fátækt og baráttuna gegn henni og safna fé til að styrkja Framtíðarsjóð Hjálparstarfs kirkjunnar. Hjálparstarfið hefur átt gott og farsælt samstarf við ÆSKÞ síðastliðin 4 ár og þau stutt starfið myndarlega. Sjá frétt á vef kirkjunnar.