![]() |
Reykjavíkurmaraþon verður 18. ágúst. Við hvetjum alla til að taka þátt og hlaupa fyrir Hjálparstarfið. Hægt er að hlaupa sex vegalengdir: 1 km fyrir börnin, 3 km skemmtiskokk, 10 km hlaup, boðhlaup (42,2 km), hálfmaraþon (21,1 km) og maraþon (42,2).
Nú er um að gera að slást í hópinn, velja sér vegalengd og byrja að safna áheitum. Þeir sem ekki eiga þess kost að hlaupa geta heitið á hlauparana á slóðinni www.hlaupastyrkur.is, velja hnappinn góðgerðarfélög, með því að velja Hjálparstarf kirkjunnar birtast þeir hlauparara sem hægt er að heita á. Þegar hlaupari sem þú vilt heita á er fundinn er gengið frá greiðslu á þeirri upphæð sem þú velur með kreditkorti – einfalt og þægilegt og hjálparstarfið eflist! Þú getur heitið á hlaupara núna með því að smella hér.
| Deila þessari frétt: |
|
|



